Guðmundur Franklín Jónsson forsetaframbjóðandi er greinlega ánægður með baráttukonuna og Crossfit-stjörnuna Eddu Falak, ef marka má stuðningsyfirlýsingu hans á Twitter í hennar garð.
„Af hverju kjósa sumir að misskilja Eddu Falak? Getur það verið vegna þess að hún hefur rétt fyrir sér og þeir sömu séu hræddir við sannleikann? Edda Falak er sannkallaður trailblazer og trendsetter. YouGoGirl,“ spyr Guðmundur Franklín.
Áhrifavaldurinn Edda hefur verið afar áberandi í nýjustu metoo-bylgjunni hér á landi þar sem hún skafar sannarlega ekkert af hlutunum. Guðmundur telur ljóst að fjölmargir virðast kjósa að misskilja baráttuaðferðir hennar og hvetur hann Eddu til dáða í baráttunni.
Edda átti alls ekki von á þessari stuðningsyfirlýsingu Guðmundar því hún svarar:
„Óvænt take dagsins.“