Augljóst er að Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, ætlar sér meira en annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. Hildur hefur undanfarnar vikur verið sýnileg víða um höfuðborgarsvæðið á auglýsingaskiltum sem eru í eigu athafnakonunnar Ingibjargar Pálmadóttur. Eiginmaður Hildar, Jón Skaftason, og Jón Ásgeir Jóhannesson, maður Ingibjargar, eru viðskiptafélagar í Skeljungi.
Hár kostnaður fylgir slíkum birtingum og ljóst að Hildur er ekki að henda peningum út um gluggann. Búist er við því að hún tilkynni á næstunni að hún muni leggja til atlögu við leiðtoga sinn, Eyþór Arnalds en engir kærleikar hafa verið á milli þeirra …