- Auglýsing -
Lögreglan á Austurlandi var að senda frá tilkynningu þess efnis að fjórir starfsmenn á Umdæmissjúkrahúsi Austurlands í Neskaupstað eru nú í sóttkví eftir að COVID-19 smit greindist hjá samstarfsmanni þeirra á föstudagskvöld.
Daginn eftir voru tekin sýni af sjötíu starfsmönnum sjúkrahússins sem höfðu verið í vinnu dagana á undan.
Niðurstöður liggja nú fyrir og voru öll sýni neikvæð.
Lögreglan á Austurlandi segir einnig að síðar í vikunni sé fyrirhugað að taka sýni aftur af þeim starfsmönnum sem eru í sóttkví og smitgát.
Einnig að aðgerðastjórn sendir út aðra tilkynningu þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.