- Auglýsing -
Einfalt og ljúffengt bananabrauð
Hráefni:
2 stórir bananar (þroskaðir)
50 gr smjör (brætt)
2 stór egg
3 dl hveiti
2 dl sykur
½ dl mjólk
1 tsk kanill
2 tsk vanillusykur
2 tsk lyftiduft
Aðferð:
Stappið þroskuðu bananana á disk og leggið til hliðar. Blandið saman öllum þurrefnum og bætið svo við bönunum, eggjum og bræddu smjöri.
Hrærið vel saman og setjið blönduna í smurt form. Bakið í 40-50 mínútur við 175 gráður á blæstri, eða þar til brauðið er orðið fallega gyllt að lit.