- Auglýsing -
Karlmaður á áttræðisaldri lést vegna covid-19 í vikunni. Þetta er 35. andlátið vegna covid hérlendis. Þetta kemur fram í uppfærðum covid-tölum frá sóttvarnaryfirvöldum.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort viðkomandi var bólusettur, en fréttastofa RÚV heldur þvi fram að viðkomandi hafi áttvið undirliggjandi sjúkdóma að stríða og glímt við veikindi lengi.