Ný ríkisstjórn hefur verið mynduð og sitt sýnist hverjum um nýju stjórnina.
Ríkisstjórnin nýja var kynnt til sögunnar um helgina og hér að neðan má sjá hvernig ráðherralistarnir flokkanna líta út:
Ráðherralisti Sjálfstæðisflokksins:
Bjarni Benediktsson verður áfram fjármálaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tekur við af Guðlaugi Þór Þórðarsyni í utanríkisráðuneytinu; Guðlaugur Þór verður ráðherra umhverfis- og loftslagsmála. Þá tekur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir við sem ráðherra nýsköpunar, iðnaðar og háskóla. Gamli refurinn Jón Gunnarsson verður dómsmálaráðherra, en Guðrún Hafsteinsdóttur tekur síðan við keflinu af Jóni eftir að átján mánuði. Flokkurinn mun líka fá stöðu forseta Alþingis.
Ráðherralisti Framsóknar:
Willum Þór Þórsson verður nýr heilbrigðisráðherra, Ásmundur Einar Daðason verður ráðherra skólamála- og barna; Lilja Dögg Alfreðsdóttir verður ráðherra viðskipta- og menningarmála og svo verður Sigurður Ingi Jóhannsson áfram samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra – nokkurs konar innviðaráðuneyti.
Ráðherralisti VG:
Eins og allir vissu verður Katrín Jakobsdóttir áfram forsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn; Svandís Svavarsdóttir fer úr heilbrigðisráðuneytinu og tekur við sem matvæla, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra; Guðmundur Ingi Guðbrandsson, fráfarandi umhverfisráðherra, tekur við sem félagsmála og vinnumarkaðsráðherra.
Nú viljum við gjarnan heyra þína skoðun, kæri lesandi. Hvernig líst þér á hina nýju stjórn?