Guðmundur Freyr Magnússon, 41 árs gamall maður, kom fyrir rétt á Spáni í síðustu viku, og játaði fyrir kviðdómi að hafa orðið unnusta móður sinnar að bana þann 12. janúar árið 2020, á heimili þeirra í Torrevieja.
Guðmundur Freyr hefur bæði játað glæpinn í sakamáli og einkamáli þar sem hann gengst við skaðabótaábyrgð upp á andvirði 15 milljóna króna til handa aðstandendum hins látna, tveggja barna hans og systur hans.
Guðmundur Freyr á yfir höfði sér 17 til 31 árs fangelsi en kviðdómur kannar nú hvort andlegt ástand hans geti leitt til refsilækkunar.
Ekki verða kölluð til vitni fyrir réttinn, þar sem Guðmundur Freyr hefur játað sekt sína, önnur en sérfræðivitni sem leggja mat á geðheilsu Guðmundar Freys, sem og fíkniefnavanda hans, og hugsanlegan þátt þessara vandamála í þeirri ákvörðun Guðmundar Freys að myrða manninn. Guðmundur Freyr segist þjást af geðklofa (schizophrenia).
Guðmundur Freyr viðurkennir að hafa komið að heimili móður sinnar og unnusta hennar með þann ásetning að myrða manninn. Hann hafi klifrað yfir 2,5 metra háan vegg til að komast að húsi móður sinnar og hins myrta.
Hann viðurkennir að hafa klæðst hönskum til að hlífa höndum sínum; ennfremur að hafa tekið gaskút og brotið glerhurð með honum. Maðurinn, sem hafði vaknað við atgang Guðmundar Freys, fékk gaskútinn í sig. Guðmundur Freyr réðst síðan á manninn sem gat enga vörn sér veitt eftir að hafa fengið gaskútinn í sig. Stakk hann manninn margsinnis með hnífi þar sem hann lá í gólfinu.
Móðir Guðmundar Freys reyndi að fá hann til að hætta árásinni en þá réðst hann á hana og veitti henni áverka. Guðmundur Freyr reyndi síðan að flýja af vettvangi en var handtekinn af spænsku lögreglunni er hann reyndi að flýja burtu á bíl. Morðvopnið, hnífurinn, fannst undir mottu í bílnum.
Sjúkraliðum á vettvangi tókst ekki að bjarga lífi fórnarlambsins.
Þetta kemur fram á spænska miðlinum Informacion. Réttarhöldin fara fram fyrir dómstóli í borginni Elche í Alicante-héraðinu. Guðmundur játaði að hafa myrt manninn, sem var 65 ára gamall, en staðhæfði að hann myndi ekki eftir verknaðinum.
Hann sagðist þjást af geðrænum vandamálum og þegar morðið var framið hafi hann verið búinn að neyta kókaíns, metamfetamíns og kannabis í sjö daga.
„Þegar ég tek þetta inn þá er ég ekki sé sjálfur,“ sagði Guðmundur Freyr fyrir rétti.