Þröstur nokkur gerði sér ferð á tilboðsdaga BYKO á Selfossi í leit að naglabyssu sem hafði verið auglýst hjá þeim á 50% afslætti. Þegar naglabyssan fannst hvergi í versluninni hringdi Þröstur í BYKO og fékk þau svör að varan hefði ekki verið til hjá þeim lengi, þrátt fyrir það að vera auglýst á tilboði.
Ekki kom fram á vefsíðu BYKO að naglabyssan væri uppseld. „Ef þeir hefðu nefnt það á heimasíðunni að naglabyssan væri uppseld þá hefði ég getað sparað mér sporin þ.e.a.s kílómetrana í akstri.“
Fleiri virðast hafa lent í svipuðu í viðskiptum við BYKO en Haraldur segir undir færslunni „Ég lenti í þessu líka í Breiddinni um daginn. Gerði mér sérferð útaf afslætti á síðunni en svo ekkert til þegar á staðinn var komið.“
Þröstur sagði frá þessu í Facebook hópnum Markaðsnördar.