Guðmundur Magni Ásgeirsson, söngvari Á móti sól, á afmæli í dag og er það í 43 skipti á ævi hans.
Magni er fæddur og uppalinn á Borgarfirði eystri og var ekki nema 11 ára þegar hann stofnaði sína fyrstu hljómsveit. Þegar hann fór í Menntaskólann á Egilsstöðum stofnaði hann rokkhljómsveitina Shape með þremur frændum sínum en hljómsveitin komst í úrslit í Músíktilraunum og gáfu þeir út plötuna Limited Edition árið 1998 og svo þriggja laga EP plötu að nafni Lost EP árið 2002. Árið 1999 gekk Magni til liðs við popparana í Á Móti Sól og hefur verið í henni síðan.
Árið 2006 kom hann öllum (nema Austfirðingum) á óvart þegar hann sló rækilegra í gegn sem rokksöngvari í raunveruleikaþáttunum RockStar SuperNova í Bandaríkjunum.
Síðar tók DV viðtal við hann en þá sagðist Magni ekki vera mikið fyrir rokkstjörnulífernið. „Ég er ekki að þykjast vera neinn engill en ég hef bara aldrei haft neinn áhuga fyrir því að prófa neitt sterkara en romm í kók.“
Guðmundur Magni á fjóra syni með eiginkonu sinni Eyrúni Huld Haraldsdóttur.