Kara Kristel vakti athygli á dreifingu stjörnumerkja ráðherranna í nýrri ríkisstjórn Íslands á Twitter í gær. Hún bjó til skipulegan lista sem sýnir að í ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar eru:
1 Hrútur
1 Naut
2 Meyjur
1 Vog
2 Sporðdrekar
2 Bogmenn
2 Vatnsberar
1 Fiskur
Í ríkisstjórninni eru engir Krabbar, Tvíburar, Ljón eða Steingeitur.
Þetta passar allt saman, þó taka skuli fram að Sigurður Ingi Jóhannsson er einmitt á mörkum þess að vera Hrútur og Naut, fæddur á skiptidegi merkjanna tveggja. Nákvæm tímasetning fæðingar myndi skýra það mál. Sigurði Inga er því bent á að hafa samband við blaðamann með þær upplýsingar, sé hann forvitinn.
Hann skal þó heita Naut hér að neðan, enda virðist það passa honum betur – í það minnsta úr fjarlægð leikmannsins.
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar og stjörnumerki þeirra
Hrútur – Hugmyndaríkur, hvatvís og hreinskilinn
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra
Naut – Traust, nautnafullt og þrjóskt
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnaráðherra
Meyjur – Nákvæmar, duglegar og gagnrýnar
Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir, matvæla- sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Vog – Forvitin, sanngjörn og óákveðin
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, viðskipta- og menningarmálaráðherra
Sporðdrekar – Ástríðufullir, þrjóskir og dularfullir
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og Ásmundur Einar Daðason, skóla- og barnamálaráðherra.
Bogmenn – Orkumiklir, jákvæðir og skapstórir
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, nýsköpunar-, iðnaðar- og háskólaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarsson, umhverfis- og loftslagsmálaráðherra.
Vatnsberar – Frumlegir, klárir og þrjóskir
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.
Fiskur – Samúðarfullur, viðkvæmur og dreymandi
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra.