Fjölmiðlakonan og vertinn Tobba Marínós sem heitir fullu nafni Þorbjörg Alda Birkis Marinósdóttir, á afmæli í dag. Er þetta í 37 skipti sem Tobba fagnar afmælisdegi sínum á ævinni.
Tobba hefur komið víða við í gegnum árin. Hefur hún meðal annars starfað sem blaðamaður á Séð og heyrt, séð um sjónvarpsþættina Djúpa laugin og Tobba á Skjá 1. Þá hefur hún einnig gefið út bækur og svo var hún ritstjóri DV frá apríl 2020 til mars 2021. Í haust opnaði hún Grenólabar á Granda ásamt móður sinni. Á barnum er seldur Nicecream sem er ís gerður einungis úr frosnum ávöxtum og hnetumjólk og því laus við allan viðbættan sykur og dýraafurðir.
Í viðtali við DV sagði Tobba að landsmenn taki vel í þessi nýjung hennar og bendir á að þetta sé fyrsti sykurlausi barinn. „Þetta er barinn sem mamma þín vill að þú farir á.“ „Allavega vill mamma mín það.“
Mannlíf óskar Tobbu til hamingju með afmælið.