- Auglýsing -
Búið er að loka Mikkeller & Friends og Systir til viðbótar við Dill.
Greint var frá því í gær að veitingastaðnum Dill hefði verið lokað. Rekstri barsins Mikkeller & Friends og veitingastaðarins Systir hefur einnig verið hætt er fram kemur í frétt á Vísi.
Staðirnir áttu að sameiginlegt að vera til húsa að Hverfisgötu 12. Öllum rekstri í húsinu hefur verið hætt.
Í tilkynningu sem hangir nú á Hverfisgötu 12 segir að stöðunum hafi verið lokað vegna „óviðráðanlegra orsaka“.
Sjá einnig: Veitingastaðnum Dill lokað
Mynd / Hákon Davíð
- Auglýsing -