Lögregla hafði hendur í hári þjófa í miðbænum í gærkvöld. Mennirnir eru grunaðir um að hafa stolið hlutum úr búningsklefum í íþróttahúsi og gistu þeir fangaklefa vegna rannsóknar málsins.
Þá hafði lögreglan afskipti af karlmanni í hverfi Laugardals um klukkan sjö í gærkvöld. Maðurinn var ofurölvi, lét illa og truflaði unga pilti sem voru á fótboltaæfingu. Lögregla handtók manninn og lét hann gista fangaklefa. Er hann einnig grunaður um þjófnað og vörslu vímuefna.
Umferðarslys varð í Kópavogi í gær. Ekið var á ellefu ára barn sem var á leið yfir gangbraut. Barnið var flutt á Bráðadeild til aðhlynningar en fann það til eymsla í hendi.
Þá var annar ökumaður, grunaður um ölvunarakstur, handtekinn í Kópavogi síðar um kvöldið. Hafði hann ekið á tvær bifreiðar og stungið af. Sá gisti fangalefa.