Óli Björn Kárason, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, er ódrepandi í þeirri viðleitni sinni að koma böndum á Ríkisútvarpið. Hann hefur nú, enn og aftur, lagt fram frumvarp um að báknið verði tekið af auglýsingamarkaði. Forysta Sjálfstæðisflokksins er ekki samstíga Óla Birni í þessu máli. Prinsipplaus lokkurinn, sem kennir sig við einkaframtak, hefur staðið vörð um ríkisfjölmiðilinn og gert er ráð fyrir að auka enn fjárveitingar til RÚV, langt umfram aðra. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri og hans fólk er þannig verðlaunað fyrir að reka stofnunina með bruðl sem leiðarljós og gullkálfa á hverjum bási. Á meðan fé er ausið í RÚV lepja einkareknir miðlar dauðann úr skel …