Heildarfjarhæð hlutdeildarlána nemur 2.438 milljónum króna á rúmu ári, eða síðan stjórnarfrumvarp Ásmundar Einars Daðasonar ráðherra varð að lögum.
Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins í dag.
Eru lánin hugsuð sem úrræði fyrir einstaklinga sem eru eignalitlir og tekjulágir.
Er lánið veitt til tíu ára með möguleika á framlengingu um fimm ár í senn.
Lánstíminn verður þó aldrei lengri en 25 ár; hefur töluverður fjöldi fólks nýtt sé hlutdeildarlánin og hafa alls 294 fengið slíkt lán.
Lánin eru álitin góð lausn fyrir kaupendur sem hafa ekki átt fasteign og þurfa aðstoð við að komast á fasteignamarkað.