- Auglýsing -
Söngkonan vinsæla Elísabet Ormslev og Sindri Þór Kárason eignuðust son þann 11.desember síðastliðinn.
Birti Elísabet mynd af frumburðinum á Instagram síðu sinni og skrifar við myndina:
„Tíu fingur, tíu tær og alveg fullkominn. Velkominn í heiminn draumadrengur“.
Elísabet og Sindri byrjuðu saman á síðasta ári og eru eins og gefur að skilja yfir sig ástfangin af erfingjanum.
Innilegar hamingjuóskir til litlu fjölskyldunnar.