Lögreglu barst tilkynning um líkamsárás í nótt. Þolandi var fluttur á Bráðadeild en var hann með áverka á höfði. Árásin átti sér stað í hverfi 105 og var gerandi handekinn stuttu síðar. Gisti sá fangageymslu vegna málsins.
Klukkan hálf þrjú í nótt stöðvaði lögreglan bifreið með röngum skráningamerkjum. Reyndist ökumaðurinn vera sextán ára gamall og því án ökuréttinda. Bifreiðin reyndist einnig ótryggð og óskoðuð. Þrír farþegar voru í bílnum, allir sextán ára. Málið var tilkynnt til Barnaverndar og foreldrum gert viðvart.
Karlmaður í annarlegu ástandi var handtekinn í Vesturbæ í nótt. Hafði maðurinn ónáðað íbúa og svæðinu og gisti fangaklefa lögreglu.
Þá handtók lögregla karlmann í Kópavogi í gærkvöld. Hafði sá haft í hótunum við fólk og var hann settur bak við lás og slá fyrir rannsókn málsns.