Þegar aðeins vika er til jóla hafa sóttvarnaryfirvöld á kanaríeyjunum Gran Canaria og Tenerife ákveðið að herða sóttvarnaraðgerðir vegna Covid-19. Hættustigið er nú komið upp í næsthæsta þrep. Yfir hátíðirnar er von á þúsundum Íslendinga til eyjanna til að njóta jólasólar.
Undanfarið hefur verið mikil aukning í smitum á eyjunum tveimur. Svo mjög að yfirvöld ákváðu að færa aðgerðir upp á hættustig 2 fyrir viku síðan.
Sjá einnig:
Sóttvarnaraðgerðir á Tenerife hertar rétt fyrir jólin – Þúsundir Íslendinga á leiðinni
Raunar eru smittölurnar svo háar á eyjunum að sóttvarnaryfirvöld hækka nú varnirnar upp í hættustig 3, af fjórum stigum mögulegum. Anna Kristjánsdóttir býr á Tenerife og varð henni brugðið við að heyra hversu smitin hafa margfaldast á stuttum tíma. Hún viðurkennir jafnframt að hafa ekki sagt alveg rétt frá í viðtölum við íslenska fjölmiðla í fyrradag.
„Ég játa fúslega að ég skrökvaði að alþjóð er ég, fyrst í viðtali við K100 og síðarað fréttamanni Ríkisútvarpsins þess efnis að lítið væri um smit hér í Paradís. Ég hefi mér samt til málsbóta að ég vissi ekki betur á þeirri stundu. Síðar sama dag komu nýjustu tölur um smit hérna og höfðu þau þá margfaldast frá deginum áður og enn jukust þau í gær og voru þá komin upp í 1000. Þar með er smittíðnin farin að nálgast tölurnar á Íslandi,“ segir Anna og bætir við:
Sjá einnig:
Svakalegt sætaframboð til Tenerife: „Mikil uppsöfnuð ferðaþörf hjá fólki“
„Í gær var svo tilkynnt að hert yrði á takmörkunum hér á eyjunni sem og á litlu eyjunni með stóra nafnið hér austur af okkur frá og með miðnætti á föstudagskvöld og erum við nú komin á það sem kallað er Level 3. Það þýðir að nú mega mest sitja sex við sama borð á veitingastöðum, barir skulu loka í síðasta lagi klukkan 02.00 og takmarkaður fjöldi á ströndum og í sundlaugum. Einhverjar fleiri takmarkanir verða í gildi sem ég nenni ekki að telja upp hér.“