- Auglýsing -
Gunnar Smári Egilssoon, félagi í Sósíalistaflokki Íslands talar um umhverfismál á facebook síðu sinni í dag. Hann er ekki sáttur við það að í umfjöllun um umhverfismál sé sökin færð yfir á almenning, frá fyrirtækja- og fjármagnseigendum.
Hann segir:
„Nú geri ég mér alveg grein fyrir að óhófleg plastnotkun sé slæm og að það er löngu tímabært að draga úr henni. Ég skil samt ekki hvers vegna það er búið að taka plastpoka af okkur viðskiptavinunum í matvörubúðunum á meðan birgjarnir fá að pakka öllu sínu í plast.
Við förum því heim með gríðarmagn af plast í maís- eða bréfpoka. Og förum svo með plastið út í tunnu í þessum pokum, svo við þurfum að sturta út þeim í plasttunnuna í stað þess að henda pokanum með eins og áður var. Bónus hefur gengið lengra, en hætt að hafa maís-pokana við kassana heldur geymir þá inn í búðinni svo við þurfum að sækja þá þangað til að geta sett allt plastið frá birgjunum ofan í þá.
Það er vonlaust að skilja þetta nema sem einskonar trúarathöfn. Og hún er ill. Hún boðar að við séum syndugar verur sem verðum að taka ábyrgð á eyðileggingu jarðarinnar á meðan að þau sem eru sannarlega að eyðileggja jörðina, fyrirtækin sem nota óhóflegt plast, eru stikkfrí, fá að fylla búðirnar og maís-pokana okkar af plasti.
Ég skil ekki hvers vegna ýmiss náttúruverndarsamtök taka þátt í þessu og mótmæla þessu ekki. Umfjöllun um umhverfismál sem færir sök yfir á almenning, frá fyrirtækja- og fjármagnseigendum, öðru nafni auðvaldinu, er í raun að styðja auðvaldið og alræðisvald þess. Og þar með eyðingu umhverfis. Þannig er nú það.“