Alls bættust við 325 manns á Covid-göngudeild í gær. Þá er haft eftir Thor Aspelund prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands að tvöföldunartími omíkron sé um tveir til þrír dagar. Það sé það mesta sem hafi sést í faraldrinum hér á landi en greinir Thor frá þessu á Facebook síðu sinni í morgun.
Thor þorir ekki að spá fyrir um það hvenær viðsnúningur á þessari þróun verði, vaxtahraðinn sé enn svo mikill.
Tölulegar upplýsingar á covid.is hafa ekki verið uppfærðar það sem af er degi en greindi Vísir frá því að Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans hafi staðfest að 325 hafi bæst við á Covid-göngudeildina í gær. Þar með hafi enn eitt metið í fjölda smita á sólarhring verið slegið.