Breyting á lyktar- og bragðskyni eru algeng einkenni þeirra sem fá sjúkdóminn COVID-19. Birtingarmyndin er oftast skyndilegt tap á lyktarskyni með eða án breytingar á bragðskyni. Einnig hefur því verið lýst að eiginleikar lyktar og bragðs geti breyst.
Það er breytilegt hversu algeng þessi einkenni eru en ljóst er að stór hluti sjúklinga upplifir einhverskonar breytingu á lyktar- og bragðskyni. Talið er að um 40%-50% sjúklinga með COVID-19 finni fyrir breytingu á lyktarskyni og rúmlega 40% finna fyrir breytingu á bragðskyni.
Algengi þessara einkenna virðist minnka með hækkandi aldri. Hjá sumum er breyting á lyktar- og bragðskyni einu einkenni COVID-19.
Flestum okkar þykir sjálfsagt að geta fundið ýmisskonar góðan ilm og jafnvel vonda lykt t.d. af mjólk sem er úrelt.
Á heilsugæslustöðinn í Geitmyrsveien í Ósló tekur tannlæknirinn Preet Bano Singh á móti sjúklingum sem hafa misst lyktar- og bragðskyn.
Á síðasta ári hefur hún haft miklu meira að gera.
Singh er með doktorsgráðu í lyktarskyni og hún er dósent og sérfræðingur í bragð- og lyktarfræði við háskólann í Ósló. Margir bíða eftir meðferð sem hafa glatað eða hafa brenglað lyktar- eða bragðskyn
Eru einhver ráð til að þjálfa upp lyktarskyn eftir Covid- 19?
Bano Singh segir að það geti hjálpað að: notast við ilmkjarnaolíur eða krydd til að kalla fram lyktar-minni. Hún lætur fólk byrja á að velja 4 ilmi til að æfa sig á þeim.
Hver ilmur tengist litum, plöntum, viðburðum eða öðru. Þegar fólk þefar t.d. af lavender á það að hugsa um bláan lit, lavender-plöntuna í blómapotti, gras að bærast í vindi, Suður-Frakkland, eða annað sem fólk tengir við plöntuna. Þegar fólk þefar af kanil á það t.d. að hugsa um grjónagraut, jólin, brúnan lit, o.s.frv. Síðan getur fólk prófað sig áfram með einn og einn ilm, sem minnir á eitthvað sérstakt. Árangur hefur náðst í 96% tilfella, á nokkrum mánuðum.
Heimild:
Anne Lise Stranden. 2021, 9. desember. De som har mistet luktesansen etter covid-19-sykdom, står i kø for å få hjelp. Forskning.no. Slóð.