Lögreglu barst tilkynning um þjófnað í gærkvöld. Hafði yfirhöfn verið stolið af veitingastað á Seltjarnarnesi en í vasa yfirhafnar voru lyklar að íbúð og bifreið. Þjófurinn hafði því stolið bílnum, farið inn á heimlið og stolið þar verðmætum en lögregla rannsakar nú málið.
Skömmu eftir miðnætti barst lögreglu tilkynning um líkamsárás í Breiðholti. Hafði kona haldið samkvæmi þangað sem óboðinn gestur mætti en var það önnur kona. Sú kýlir gestgjafa í andlitið með þeim afleiðingum að hún hlaut skurt á augabrún. Konan var flutt með sjúkrabifreið til aðhlynningar á Bráðadeild. Árásaraðilinn var farinn þegar lögregla mætti á vettvang.
Gamall sumarbústaður við Elliðvatn brann til kaldra kola í nótt. Slökkvilið og lögregla mættu á vettvang en ekki er vitað um eldsupptök að svo stöddu.
Lögregla stöðvaði bifreið í miðbænum í nótt. Ökumaður grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna og án ökuréttinda. Bæði ökumaður og farþegi voru handteknir en eru þeir grunaðir um að hafa stolið bíl meðal annars. Báðir gistu í fangaklefa lögreglunnar.
Þá hafði lögregla afskipti af konu í bifreið í Kópavogi og handlagði lyf. Konan er grunuð um sölu dreifingu lyfja og brot á lyfjalögum. Var hún látin laus að skýrslutöku lokinni.