Mikil aukning hefur orðið á neyslu unglinga á eiturlyfinu Space á síðustu árum. Dæmi eru um að börn niður í 12 ára séu að neyta efnisins, þá með því að veipa það, en eiturlyfið er hraðvirkandi og getur valdið mikilli fíkn.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á erfitt með að ná utan um vandann því unglingarnir eiga frekar auðvelt með að fela neysluna þar sem efnið er nær lyktarlaust. Spice greinist heldur ekki í þvagprufum.
Áhrifin af spice geti svipað til áhrifa af kannabis en eru þó oftast talsvert meiri. Paranoja, ógleði og alls kyns vanlíðan er meðal þeirra aukaáhrifa sem neytendur finna fyrir. Spice er yfirleitt blandað við annað plöntuefni og þau síðan reykt. Eiturlyfið er tiltölulega nýtt efni á markaðnum og hefur neysla þess stóraukist á síðustu árum.
Margir grunnskólar landsins hafa orðið varir við neyslu nemenda sinna á efninu. Neyslan er oft mjög falin. Efnið er lyktarlaust og aðeins nýlega komu á markað heimapróf sem greina efnið í sýnum.