Ritstjórn Mannlífs óskar öllum gleðilegrar hátíðar og þakkar lesendum sínum góða samleið og stóraukinn lestur á árinu.
Almenningur tók Mannlífi opnum örmum á árinu 2021. Mannlíf hefur verið í fordæmalausri sókn frá því að nýir eigendur tóku við fjölmiðlinum. Frá því Sólartún tók við mannlif.is á síðasta ári hefur lestur Mannlífs aukist um 556 prósent og notendum fjölgað um 385 prósent. Þá hefur beinum heimsóknum inn á vefinn fjölgað um 884 prósent.
Mesta lestraraukning Mannlífs milli mánaða á tímabilinu nemur 615 prósentum. Fjölmiðilinn hefur náð góðu jafnvægi á fjölmiðlamarkaðnum þar sem daglegur lestur er alla jafna um 40-55 þúsund lesendur. Hæst reis lesturinn í rúmlega 100 lesendur á dag.
Á árinu sagði Mannlíf fyrst allra fjölmiðla frá hvort heldur meintum sem viðurkenndum kynferðisbrotum landsliðsmannanna Arons Einars Gunnarssonar, Eggerts Gunnþórs Jónssonar, Gylfa Þórs Sigurðssonar og Kolbeins Sigþórssonar. Mannlíf greindi einnig fyrst frá meintri ofbeldishegðun Ragnars Sigurðssonar landsliðsmanns. Þá kom Mannlíf af stað þeirri Metoo-bylgju sem enn er í gangi eftir að hafa opnað á meint brot Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns og Ingólfs Þórarinssonar tónlistarmanns, sem er betur þekktur sem Ingó Veðurguð.
Fjölmargar fréttir Mannlífs vöktu mikla athygli á árinu og var miðillinn leiðandi í stórum fréttamálum. Svona var árið með augum Mannlífs:
Fréttaannáll 2021
Janúar
Stefán Karlsson er látinn: Minning um leiðtoga og yndislega manneskju lifir
Stefán Karlsson lést langt fyrir aldur fram. Hann var framkvæmdastjóri Vals í tvö ár og stjórnarmaður í handknattleiksdeild félagsins.
Stefáni var lýst sem afar vönduðum manni, góðhjörtuðum og ráðagóðum. Stefán var einnig mikill leiðtogi og tók hann á móti öllum glaðbeittur á svip og bros hans leið fólki seint úr minni.
Fjölmargir minntust Stefáns á samfélagsmiðlum.
„Minning um frábæran leiðtoga og yndislegan félaga, einn okkar allra bestu, mun lifa meðal okkar í Valssamfélaginu.“
„Þetta eru skelfilegar fréttir. Stefán var einstaklega góður og vandaður maður. Hans verður sárt saknað en minningin um góðan dreng lifir. Innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu hans og vina.“
Jóni Baldvin greitt þungt högg: Varð fyrir miklu áfalli í gær
Héraðsdómur féllst fyrst á kröfu Jóns Baldvins um að vísa kærunni frá dómi á þeim forsendum að dómstólar hérlendis hefðu ekki lögsögu í málinu.
Saga Guðmundar Felix Grétarssonar er mörgum Íslendingum kunn. Hann lenti í hræðilegu slysi og missti báða handleggi fyrir um tuttugu og tveimur árum. Síðustu ár hefur hann beðið eftir að gangast undir handleggjaágræðslu eftir að hafa verið 5 ár á biðlista.
Mannlíf færði frábærar fréttir af Guðmundi Felix á árinu og hefur fylgst grannt með hetjulegri endurhæfingu þessa gleðigjafa.
Frábærar fréttir af Guðmundi Felix – Laus af gjörgæslu og horfur góðar
Kara Kristel sýnir brjóstið og ávarpar þjóðina: „Kemur okkur öllum við“
Á tveimur árum fór Kara tvisvar. Hana grunaði að eitthvað amaði að, en það var ekki fyrr en ári síðar að símtalið kom. Þá hafði sýni Köru verið endurskoðað eftir að ung kona lést úr leghálskrabbameini. Kara opnaði sig um reynslu sína og sagði:
„Seinasta sumar lést ung kona vegna þeirra mistaka og í kjölfarið hófst rannsóknarferli. Ég var kölluð inn strax og í forgangsröð vegna aðstæðna. Niðurstöður komu hratt og voru ekki beint fallegar og lofuðu alls ekki góðu.
Þetta eru ekki skemmtilegustu fréttir heimsins. Ég var ekki leið eða reið, þetta kom mér eiginlega ekki á óvart vegna þess að ég þekki líkamann minn mjög vel og ég fann að það var eitthvað að.“
Febrúar
Aftaka var framin við Rauðagerði um miðnætti á laugardag. Ungur maður á fertugsaldri var tekinn af lífi á hrottalegan og kaldrifjaðan hátt. Hinn myrti var Íslendingur, Armando Beqiri, sem á ættir að rekja til Albaníu. Hann settist hér að annan jóladag árið 2014, lærði tungumálið, kynntist konu og giftist, eignaðist barn og átti von á öðru kríli í fangið örfáum mánuðum síðar, eiginmaður, faðir og fyrirtækjaeigandi í Gerðunum. Unnusta hans er nú gengin 24 vikur.
Armando virtist hafa komið ár sinni vel fyrir borð og hann kunni íslensku. Stoltur kaus hann svo í fyrsta sinn á lífsleiðinni er hann stakk kjörseðli í kassann í þingkosningum hér á landi. Armando var líka harður stuðningsmaður íslenska landsliðsins.
Skömmu fyrir miðnætti lagði Armando bíl sínum inn í bílskúr og á sömu stundu og hann var að ganga að útidyrunum er talið að bíl hafi verið ekið fram hjá húsinu og þaðan hafi hverju byssuskotinu á fætur öðru verið hleypt af. Samkvæmt heimildum Mannlífs hæfðu kúlurnar Armando í bak, háls og höfuð en aðrar misstu marks. Á vettvangi fannst Armando liggjandi í blóði sínu og var reynd endurlífgun og hann fluttur á spítala.
Armando komst aldrei til meðvitundar og var hann úrskurðaður látinn á Landspítalanum stuttu eftir komu þangað.
Nafn mannsins sem lést í Rauðagerði: Var íslenskur, elskaður, átti konu og barn og von á öðru
Mars
Talsverð umræða var um atvikið á samfélagsmiðlum þar sem margir furðuðu sig á því að ekkert hefði verið fjallað um það í fjölmiðlum. Þar til Mannlíf sagði frá.
Eins og frægt er, var Eiður Smári á endanum sendur í leyfi vegna áfengisvandamála sinna og að lokum rekinn af KSÍ úr starfi sínu sem aðstoðarþjálfari.
17. mars – Mannlíf greindi frá áfengisvanda Eiðs Smára Guðjohnsen, fyrrverandi aðstoðarlandsliðsþjálfara. Þá mætti hann slompaður í sjónvarpsútsendingu.
Eiður sagður vera undir áhrifum í beinni útsendingu – KSÍ og Síminn á flótta – Sjáðu atvikið
Maí
1. maí – Mannlíf opnar nýja metoo-bylgju með umfjöllun um eina af forystukonum Öfga-hópsins sem hafði fengið nóg af þöggun samfélagsins gagnvart kynferðisbrotum þekktra manna. Umfjöllunin opnaði á meint brot Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns.
Ólöf segir þjóðþekktan mann hafa lamið vændiskonu: „Ég þurfti að slá stjörnurykið úr augunum“
3. maí – Eftir umfjöllun Mannlífs steig Sölvi fram og lýsti yfir sakleysi sínu.
Sölvi Tryggvason sver af sér ofbeldisverk: „Ég óska engum að lenda í þeirri hakkavél“
5. maí – Mannlíf sagði frá því að tvær konur hefðu lagt fram kæru til lögreglu vegna meints ofbeldis Sölva. Lýsingar kvennanna komu hér fram:
Yfirlýsing kvennanna í heild sinni: „Sölvi rauk þá upp og hrinti mér í gólfið“
Júní
12. júní -Mannlíf greindi frá því þegar Eiður Smári náðist á myndband í miðborginni þar sem hann hneykslaði alþjóð með athæfi sínu.
Myndband af Eiði Smára í miðbænum – Hneykslaði vegfarendur með athæfi sínu
13. júní – Auðunn Lúthersson tónlistarmaður, betur þekktur sem Auður, sætti útilokun í samfélaginu eftir alvarlegar ásakanir á samfélagsmiðlum um kynferðisbrot.
Auður bannfærður: Trúbador með þrjár kærur fyrir kynferðisbrot leikur lausum hala
16. júní – Mannlíf greindi frá því að Eiður Smári hefði verið skikkaður í leyfi frá starfi sínu sem landsliðsþjálfari. Ástæðan var óregla þjálfarans.
Eiður Smári áminntur og fer í tímabundið leyfi – „Ábyrgðin liggur hjá mér“
Júlí
Fyrst allra fjölmiðla heims greindi Mannlíf frá ásökunum á hendur fótboltakappanum og landsliðsmanninum Gylfa Þór Sigurðssyni. Sögur flökkuðu um samfélagsmiðla og því haldið fram að hann hefði verið að senda ungri stúlku eða stúlkum ósiðsamleg skilaboð.
Síðar kom í ljós að Gylfi Þór var handtekinn af bresku lögreglunni grunaður um brot gegn ólögráða stúlku. Rannsókn málsins stendur enn yfir og hefur lögreglan gefið sér frest fram í janúar til að klára hana.
Það kom eins og blaut tuska framan í íslensku þjóðina að Gylfi hefði verið handtekinn. Þetta eru einhverjar óvæntustu og verstu fréttir sem landsmenn hafa fengið í langan tíma.
Gulldrengurinn Gylfi er um þessar mundir fallinn af stalli sem konungur íslenskra knattspyrnumanna, en máli hans er þó alls ekki lokið. Hann liggur undir grun um hræðilegt athæfi en hefur ekki verið dæmdur. Flestir vona að Gylfi Sigurðsson sé saklaus af því sem á hann er borið.
2. júlí – Mannlíf greinir frá bylgju á samfélagsmiðlum eftir að ljóst var að ráða átti Ingó Veðurguð sem aðalnúmerið á Þjóðhátíð. Tuttugu konur stigu fram og lýstu kynferðisofbeldi af hálfu hans.
„Ég er bara hissa að Þjóðhátíð hafi ekki grátbeðið Auði að vera með svona for the cherry on top“
5. júlí – Mannlíf tekur einkaviðtal við Ingó Veðurguð sem segist staðráðinn í að koma í veg fyrir að mannorð hans verði eyðilagt.
Ingó Veðurguð í viðtali við Mannlíf: „Ég ætla ekki að láta eyðileggja mannorð mitt“
19. júlí – Mannlíf segir fyrst allra fjölmiðla frá sögusögnum á samfélagsmiðlum þess efnis að Gylfi Þór hafi verið handtekinn vegna grunsemda um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi.
19. júlí – Mannlíf greinir frá brottvikningu Gylfa úr Everton þar sem enska úrvalsdeildarfélagið sendi frá sér tilkynningu.
Lið Gylfa sendir staðfestingu – Everton staðfestir brottrekstur leikmanns félagsins
Gulldrengur fallinn af stalli
Gylfi hefur verið einn af fremstu fótboltamönnum Íslands um árabil og sannkölluð þjóðhetja. Mannlíf fór yfir glæsilegan feril Gylfa nú í sumar. Það kom eins og blaut tuska framan í íslensku þjóðina að Gylfi hefði verið handtekinn grunaður um áðurnefnt brot. Þetta eru einhverjar óvæntustu fréttir sem landsmenn hafa fengið í langan tíma.
Máli hans er þó alls ekki lokið. Hann liggur undir grun, en hefur ekki verið dæmdur. Flestir vona að mál hans sé reist á misskilningi og hann snúi aftur.
Gylfi hefur ekki verið sakfelldur fyrir eitt né neitt og hið sama má segja um aðra landsliðsmenn í fótbolta.
Gylfi segist vera saklaus og á hann skýlausan rétt á því að verða ekki dæmdur fyrir fram af einum né neinum. Hið sama má segja um aðra leikmenn íslenska landsliðsins.
20. júlí – Mannlíf greinir frá því að Gylfi sé umvafinn fjölskyldu og lögmönnum á Englandi. Á sama tíma greinir Mannlíf frá því að Alexandra Helga, eiginkona Gylfa, sé komin til Íslands.
21. júlí – Mannlíf greinir frá því að Gylfa Þór sé gætt allan sólarhringinn vegna málsins. Þá greindu heimildarmenn frá því að Alexandra væri flutt út af heimili þeirra á Englandi.
Mannlíf greindi frá því að eiginkona Gylfa – Alexandra Helga Ívarsdóttir – væri komin til landsins. Á sama tíma var nánasta fjölskylda Gylfa komin til Englands, og Gylfi sagður vera kominn með hóp lögfræðinga til að verja sig.
Í samtali við Mannlíf bar tengdafaðir Gylfa til baka sögusagnir um að þau stæðu í hjónaskilnaði vegna málsins.
22. júlí – Mannlíf greinir fyrst allra frá frásögn meints þolanda landsliðsmannanna Arons Einars og Eggerts Gunnþórs. Þá treysti fórnarlambið sér ekki til að nafngreina þá né koma fram undir nafni.
Segir tvo þjóðþekkta Íslendinga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “
Ágúst
12. ágúst – Mannlíf slær á sögusagnir þess efnis að Gylfi Þór og Alexandra væru að skilja en sögur um slíkt voru á sveimi. Tengdafaðir Gylfa útilokaði hjónaskilnaðinn í samtali við Mannlíf.
Tengdafaðir Gylfa Þórs knattspyrnukappa: „Þau eru ekki að skilja“
25. ágúst – Mannlíf greinir frá því að allt logi á samfélagsmiðlum eftir drottningarviðtal Akureyri.net við Aron Einar landsliðsfyrirliða.
Akureyri.net fordæmt fyrir viðtal við Aron Einar landsliðsfyrirliða – Facebook-síðan logar
Mannlíf greindi frá því að starfsmaður á leikskólanum Sælukoti í Reykjavík væri sakaður um ofbeldi í garð barns við skólann. María Ösp Ómarsdóttir, leikskólastjóri Sælukots, sagði að umrætt atvik hefði átt sér stað áður en hún tók við skólastjórastöðunni.
Leikskólinn Sælukot er rekinn af Ananda Marga-samtökunum.
Í tölvupósti Maríu til foreldra barna í leikskólanum kom fram að viðkomandi starfsmaður hefði verið sendur í leyfi á meðan rannsókn stæði yfir og skólastjórnendur ættu í samskiptum við Barnavernd og Reykjavíkurborg vegna málsins:
„Það sem skiptir mestu máli er að börnin ykkar séu örugg og hamingjusöm hér í Sælukoti og við munum gera allt sem við getum til að leysa málið eins hratt og hægt er.“
Í fjölda frétta greindi Mannlíf frá miklum ólestri í rekstri Sælukots.
Starfsmaður leikskóla sakaður um ofbeldi: „Mestu máli skiptir að börnin séu örugg“
26. ágúst – Mannlíf sagði fyrst allra frá meintri ofbeldishegðun Ragnars Sigurðssonar, fyrrverandi landsliðsmanns í fótbolta. Kvartað var til KSÍ sem aðhafðist ekkert.
Landsliðið í stormi samfélagsmiðla – Ásakanir um kynferðisbrot og heimilisofbeldi
28. ágúst – Mannlíf greinir frá því að landsliðsmaðurinn Kolbeinn Sigþórsson hefði brotið af sér kynferðislega og samið um bætur eftir iðrun.
Kolbeinn Sigþórsson iðraðist og greiddi bætur eftir kynferðisofbeldi – Guðni þaggaði málið niður
Mannlíf greindi frá ástríðuglæp á Egilsstöðum. Byssumaður æddi inn á heimili fyrrverandi eiginmanns kærustu sinnar, vopnaður kröftugum loftriffli. Börn voru á heimilinu.
Lögreglan á Austurlandi skaut manninn við íbúðarhús á Egilsstöðum. Maðurinn var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Maðurinn er rúmlega fertugur sjómaður og ekki þekktur fyrir ofbeldi. Hafði hann verið í ástarsambandi við kærustu sína í rúmt ár en heimildir Mannlífs herma að lögreglan hefði verið kölluð á heimili þeirra síðastliðið sumar. Maðurinn hefur í gegnum tíðina verið mikill áhugamaður um byssur og átt fjölmörg skotvopn.
Ástríðuglæpur á Egilsstöðum – Börn voru á staðnum þegar sjómaður var skotinn af lögreglu
September
1. september – Kolbeinn steig loksins fram. Mannlíf birti yfirlýsingu fótboltamannsins þar sem hann iðraðist opinberlega hegðunar sinnar.
Mannlíf opnaði á mál skipherra hjá Landhelgisgæslunni sem grunaður er um kynferðislega áreitni gegn undirmönnum sínum.
Mannlíf hefur eftir áreiðanlegum heimildum úr nokkrum áttum, að innan sjódeildar Landhelgisgæslunnar hafi viðgengist einelti og kynferðisleg áreitni gagnvart kvenkyns starfsmönnum. Margar hafi hrökklast frá Gæslunni í gegnum tíðina eða verið sagt upp.
Einn viðmælandi Mannlífs lýsir ástandinu þannig að konur séu þar ítrekað áreittar kynferðislega og teknar af þeim laumumyndir á farsíma, við líkamsrækt um borð. Þeim myndum sé svo deilt á milli karlkyns skipverja. Annar viðmælandi vitnar um að kvæntir yfirmenn séu að fá lægra settar konur um borð upp í brú til sín, til að daðra og „klappa þeim“ og þær þori ekki öðru en láta það viðgangast, af hræðslu við að deila við skipherrann. Einnig tíðkist áfengisneysla skipverja um borð og að yfirmenn líti fram hjá því.
Segja konur áreittar og niðurlægðar á skipum Landhelgisgæslunnar
16. september – Mannlíf fór yfir frásögn fórnarlambs Kolbeins sem lýsti hegðun landsliðsmannsins:
„Ég barði á hurðina og ég man að það fyrsta sem ég sagði“: „Kolbeinn Sigþórsson er að drepa mig“
30. september – Mannlíf birtir yfirlýsingu Arons Einars þar sem hann lýsir fullkomlega yfir sakleysi sínu af meintum kynferðisbrotum.
Aron segist fórnarlamb en ekki gerandi: „Settur saklaus til hliðar í nýrri útilokunarmenningu KSÍ“
Október
1. október – Mannlíf varpar ljósi á hvað Aroni Einari er gefið að sök. Hræðilegar lýsingar á kvöldinu í Kaupmannahöfn.
Þetta er það sem Aron fyrirliði er sakaður um – Lestu hræðilegar lýsingar meints þolanda
2. október – Mannlíf greindi frá því að Gylfi hefði verið leystur úr varðhaldi lögreglunnar en hann greiddi tryggingu til að losna.
Mannlíf greindi frá máli Skúla Gunnlaugssonar, læknis á Landspítalanum, en hann er nú rannsakaður af lögreglu fyrir alvarleg brot í starfi. Einnig greindi Mannlíf frá öðrum lækni sem grunaður er um manndráp á geðdeild Landspítalans.
Mannlíf sendi nokkrar spurningar er varða ráðningu Skúla Gunnlaugssonar á Landspítalann en lögreglurannsókn á meintum, alvarlegum brotum hans í starfi sem yfirlæknir á sjúkrasviði Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, stendur nú yfir hjá lögreglunni. Alls hafa sex fjölskyldur kært Skúla en alvarlegustu brotin snúa að ábyrgð hans á dauða sjúklinga sinna. Hefur að minnsta kosti ein fjölskyldan kært hann fyrir manndráp af ásetningi.
Landspítalinn svaraði engu um mál Skúla.
Landspítalinn svarar engu um starfsmenn sem sæta lögreglurannsókn
19. október – Mannlíf greinir frá því að breska lögreglan hefði framlengt rannsókn sína á meintum kynferðisbrotum Gylfa til 16. janúar næstkomandi.
22. október – Mannlíf greindi frá því að Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður FH, hefði verið í slagtogi með Aroni Einari, hið umdeilda kvöld í Kaupmannahöfn 2010.
Eggert Gunnþór Jónsson sakaður um nauðgun í sama máli og Aron Einar Gunnarsson
Nóvember
24. nóvember – Mannlíf greinir frá brottrekstri Eiðs Smára úr starfi aðstoðarlandsliðsþjálfara.
Eiður Smári hættur með landsliðið: „Síðasta ár hefur verið mjög krefjandi“
26. nóvember – Mannlíf kannaði hug þjóðarinnar til brottrekstrar Eiðs Smára. Í ljós kom að þjóðin er verulega ósátt við meðferðina á þjóðhetjunni.
Desember
1. desember – Mannlíf varpar ljósi á atburðarásina sem leiddi til brottvikningar Eiðs Smára hjá KSÍ.
8. desember – Mannlíf segir frá yfirhylmingu KSÍ í máli Arons og Eggerts. Reynt var að þagga málið niður því annar þeirra átti kærustu sem mátti ekki frétta af atvikinu.
KSÍ lagði áherslu á að leyna atviki Arons og Eggerts „því annar leikmaðurinn átti kærustu“
8. desember -Mannlíf birtir fréttir af því að KSÍ hafi vitað af meintri ofbeldishegðun Ragnars Sigurðssonar landsliðsmanns. Ekkert var aðhafst í málinu.
Hótaði að brjóta fætur Ragnars – Landsliðsmaðurinn neitar viðtali um meinta ofbeldishegðun
8. desember – Vanda Sigurgeirsdóttir ræðir loksins brottrekstur Eiðs Smára. Hún var buguð eftir brottreksturinn og svaf ekkert um nóttina.
Vanda grét vegna Eiðs Smára: „Ég gat eiginlega ekkert sofið þessa nótt og leið ömurlega“
8. desember – Mannlíf segir fyrst frá sláandi afsökunarbréfi vinkonu Arons og Eggerts þar sem hún afsakar hegðun sína í garð meints fórnarlambs knattspyrnumannanna. Þeir vörpuðu sök hvor á annan og báðu vinkonuna um að ljúga fyrir sig.
Sjáðu sláandi afsökunarbréf vinkonu Arons og Eggerts: „Ég var neydd til að ljúga fyrir þá“