Nú hefur fengist staðfest að Rauði krossinn fái tvö farsóttarhús til viðbótar til afnota á nýju ári.
Nú þegar hefur Rauði krossinn fengið úthlutað hundrað herbergja álmu á öðru hóteli á höfuðborgarsvæðinu til að mæta þeim mikla veldisvexti sem orðið hefur í smitum undanfarið. Sama hótel verður svo að fullu lagt undir farsóttarhús á mánudaginn næstkomandi. Ný farsóttarhús verða því orðin þrjú talsins strax í upphafi nýs árs.
Þetta staðfestir Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttarhúsa, við fréttastofu RÚV í dag.
Í dag var hafist handa við að koma þeim gestum sem þegar dvöldu í umræddri álmu yfir á önnur hótel.
Í gær biðu um 60 manns eftir því að komast inn í farsóttarhús og hafði einhverjum hluta þeirra verið vísað út af venjulegum hótelum eftir að hafa greinst með veiruna.
Vandinn var ræddur sérstaklega á upplýsingafundinum sem haldinn var með þeim Þórólfi Guðnasyni, Víði Reynissyni og Ölmu Möller í morgun.