Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, heldur úti vinsælu hlaðvarpi og VefTv á mannlif.is undir yfirskriftinni Landbúnaðarráðherra Mannlífs. Seinasti gestur hans var Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra menntamála, sem fór á kostum í spjalli við fyrrverandi formann Framsóknarflokksins. En næsti gestur hans er sjálfur Jóhannes Kristjánsson, eftirherma og skemmtikraftur, sem reyndar hefur sérhæft sig í rödd og líkamstöktum Guðna. Þátturinn verður frumsýndur á nýársdag og víst að margir vilja sjá þá félaga spjalla saman. Báðir eru þeir sveitastrákar. Jóhannes kemur frá Ingjaldssandi við Önundarfjörð en Guðni er frá Brúnastöðum á Suðurlandi. Jóhannes er einn fyrsti hjartaþeginn á Íslandi. Hann hefur um áratugaskeið skemmt þjóð sinni með eftirhermum og gríni.