- Auglýsing -
Heimildamyndin Hálfur álfur hefur svo sannarlega slegið í gegn. Í myndinni fylgist Jón Bjarki Magnússon blaðamaður með lokakaflanum í lífi afa síns, Trausta Breiðfjörð Magnússonar fyrrverandi vitavarðar á Sauðanesvita. Myndin hefur hlotið mikið lof en þar er að finna óborganlega kafla eins og þegar Trausti er að skoða líkkistu sína sem hann hafði valið sér af alúð. Gamli maðurinn átti sér þá ósk að verða 100 ára og það gekk eftir en hann lést áður en hann næði 101 árs aldri. Fólk bíður nú spennt eftir næsta verkefni Jóns Bjarka …