- Auglýsing -
Nóg var að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Margar tilkynningar um eld bárust í gærkvöldi og nótt
Þó mikið hafi verið að gera var það ekkert í líkindum við nýársnótt þegar allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var bókstaflega á þönum alla nóttina.
Í nótt þurfti að slökkva í ruslagámum í Múlunum og Kópavogi og þaki í Laugardalnum, einnig loguðu gróðureldar. Þá bárust tilkynningar um að börn og unglingar væru að fara ógætilega flugelda. Lögregla var til dæmis kölluð til að heimili í Reykjavík vegna krakka sem voru að setja flugelda inn um kattarlúgu á heimili. Krakkarnir voru á bak og burt þegar lögregla kom á staðinn en engar skemmdir höfðu orðið á heimilinu vegna uppátækisins.
Tilkynnt var um flugeld sem sprakk í stigahúsi í gærkvöld. Engin slys urðu á fólki en grunur er þó um að um skemmdarverk hafi verið að ræða.
Umferðaróhapp varð í Efra-Breiðholti en ökumaður og farþegi reyndu að stinga af á hlaupum. Lögreglan handtók fólkið skömmu síðar.
Þá var maður stöðvaður af lögreglu grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda. Hann er auk heldur talinn hafa verið á stolnum bíl.