„Hugarfar fólks gagnvart Covid hefur breyst gríðarlega s.l. 2 vikur. Ég greindist í dag með Covid og hef nú fengið fjölda fyrirspurna frá fólki hvort það megi koma og fá hjá mér smá smit til að ljúka þessu af,“ segir Guðmundur Jörundsson, fatahönnuður.
Guðmundur sagði frá því á Twitter-síðu sinni í gær að hann hefði greinst með Covid-19 á öðrum degi ársins.
Guðmundur segir ljóst að hugarfar fólks gagnvart Covid-19 hafi svo sannarlega breyst síðustu vikurnar. Þúsundir hafa smitast af Covid-19 en þrátt fyrir það hefur minna borið á alvarlegum veikindum en oft áður, ekki síst vegna þátttöku fólks í bólusetningum.