Fasteignamarkaðurinn hefur verið töluvert milli tannanna á fólki síðustu vikur og mánuði og ekki af ástæðulausu. Þá hefur verið mikil vöntun á sérbýlum en loks virðast nokkrar spennandi nýbyggingar vera að koma inn á markaðinn.
Í Úlfarsárdal við Silfratjörn 20-24 eru þrjú, 4-5 herbergja raðhús í byggingu. Eru húsin á tveimur hæðum og innangengt í 23 fermetra bílskúr.
Húsin eru staðsett á besta stað í fallegu og fjölskylduvænu hverfi en hefur Lind fasteignasala húsin á skrá.
Húsin afhendast tilbúin til innréttinga í apríl 2022 en lóðin verður frágengin í maí.
Skipulag hússins er til fyrirmyndar og útsýnið er fallegt enda Esjan og Úlfarsfell í næsta nágrenni.
Þá eru eignirnar bjartar enda gólfsíðir gluggar í öllum húsum.
Fyrir áhugasama er hægt að nálgast allar frekari upplýsingar á vef fasteignasölunnar.