MAST hefur leitað eftir skýringum frá þessu fólki, skrifað samantekt og skilað álit til lögreglunnar en Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir vill ekki gefa upp hvað kom fram í því. „Helsta niðurstaðan er að við komumst ekki lengra með rannsóknina. Við getum ekki lokið þessu máli vegna þess að við höfum ekki óklippt myndband, við fengum það ekki afhent. Það er erfitt að byggja á klipptum myndböndum, því að það er hægt að gera ýmislegt með klippingu eins og við þekkjum úr bíómyndum sem við sjáum.“
Sigurborg segir að MAST hafi farið ítarlega yfir myndskeið samtakanna á Youtube og fengið upplýsingar um hvenær myndefnið var tekið.
„Þá gátum við vitað hvar þetta var tekið og hvaða aðilar voru þar viðstaddir. Þó þeir hafi ekki komið fram í mynd,“ segir Sigurborg.
Fréttastofa Ríkisútvarpsins spyr: En var ekki þokkalega ljóst, hvað átti sér stað á þessu myndskeiði? „Jú, en það sem vantar inn í er hversu lengi var þetta, er verið að sýna sama hlutinn aftur og aftur, það er svo erfitt að gera sér grein fyrir því á klipptu myndbandi og það skiptir svo miklu máli upp á alvarleika brotanna.“
En voru þetta samt sem áður ekki frekar alvarleg brot það sem við sáum þarna á myndskeiðinu? „Við getum ekki metið það út frá þessu klippta myndbandi, þess vegna þarf að fá óklippt myndband á alvarleika brotanna,“ svarar hún.
Samkvæmt heimildum Mannlífs hafa dýraverndarsamtökin hafa gefið út yfirlýsingu þar sem þau segjast vera tilbúin að afhenda lögreglunni myndböndin óklippt.