Í gær og aðfaranótt laugardags komu 89 mál inn á borð lögreglunnar frá kl.17-05.
Tilkynnt var um eld í húsnæði þjóðskrá að Borgartúni. Lögregla náði að slökkva eldinn og reykræsti slökkvilið húsnæðið. Maður sem var í annarlegu ástandi var handtekinn á vettvangi grunnaður um að hafa brotist inn í húsið og kveikt í. Málið er í rannsókn.
Árekstur fólksbifreiðar og flutningabíls varð í Kollafirði með þeim afleiðingum að flutningabifreiðin endaði utan vegar og valt. Ökumaður flutningabifreiðarinnar var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Í Grafarvoginum í hverfi 112 voru ungmenni iðin við að kasta flugeldum í hús víðsvegar um hverfið og hafði lögregla afskipti af nokkrum ungmennum vegna þessa sem lofuðu bót og betrun.