Anna Kristine lætur eftir sig uppkomna dóttur, Elísabetu Elínu Úlfsdóttir, en hún greinir frá andlátinu í færslu á Facebook.
Bogi Ágústsson fréttamaður Ríkisútvarpsins sendir dóttur hennar samúðarkveðjur:
„Innilegar samúðarkveðjur, ég minnist móður þinnar með mikilli hlýju.“
Blaðamennskuferill Önnu hófst árið 1977 og starfaði hún meðal annars á DV, Helgarpóstinum og Pressunni auk þess að ritstýra nokkrum tímaritum.
Hún hóf störf hjá Ríkisútvarpinu árið 1991, var umsjónarmaður Dægurmálaútvarps Rásar 2 árin 1991-96, morgun- og síðdegisútvarps Rásar 2 1994-96 og með eigin útvarpsþátt, Milli mjalta og messu, á Rás 2 1996-99. Síðar starfaði hún á Stöð 2.
Anna starfaði meðal annars á DV um tíma sem blaðamaður ásamt Reynir Traustasyni ritstjóra.
Mannlíf vottar fjölskyldu og vinum samúð.