Helgi Björnsson og Vilborg Halldórsdóttir eru flutt í Kópavog í einbýlishús sem byggt var 1965. Helgi er einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar en hann gerði garðinn frægan með hljómsveitum á borð við Grafík og Sssól.
Vilborg hefur verið með vinsæla sjónvarpsþætti í gegnum tíðina og farið með Íslendinga á framandi slóðir sem fararstjóri. Hún skemmti gestum með ljóðalestri í þáttunum Heima með Helga.
Hjónin bjuggu lengi í miðbæ Reykjavíkur en nú eru þau flutt í einbýlishús í Kópavogi. Húsið er á góðum stað á Kársnesinu og er 218 fm að stærð. Hannes Kr. Davíðsson arkitekt teiknaði húsið en í kringum það er myndarlegur garður og útsýni út á sjó.
Þótt hjónin Helgi og Vilborg séu nýlega flutt í húsið þá festu þau kaup á því 2017 en það er skráð á félagið Sunnubraut ehf. sem er í eigu Helga.