- Auglýsing -
Tveir karlmenn á níræðisaldri létust á Landspítala í gær af völdum COVID-19. Frá þessu er greint á vef spítalans. Nú eru 36 á Landspítala með covid, þar af sjö á gjörgæslu.
915 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 134 í landamærasýnatöku. Alls eru nú 9.365 í einangrun vegna Covid-smits, og 9.798 í sóttkví.
Enn eru því um 19 þúsund manns í sóttkví eða einangrun, en þeim fækkar um tæplega eitt þúsund frá í gær.