Á Húsavík ríkir nokkur spenna vegna yfirvofandi kosninga. Núverandi bæjarstjóri er sjálfstæðismaðurinn Kristján Þór Magnússon sem fer með völd sín í umboði Vinstri grænna. Pólitísk upplausn hefur verið undanfarna mánuði á Húsavik vegna þeirra erfiðleika með Kristján Þór hefur glímt við og fjarveru hans. Bæjarstjórinn hefur gert pólitísk mistök eins og þau að gera sænska poppstjörnu að heiðursborgara, þvert á reglur, eftir að hún hafði komið í stutta heimsókn. En nú hefur rofað til og bæjarstjórinn er kominn í stólinn aftur, eldhress, eins og fram kom í viðtali hans við Mannlíf. Vandinn er hins vegar sá að ágreiningur er um það hvort hann eigi að leiða framboð sjálfstæðismanna í vor. Það má búast við átökum að tjaldabaki …