- Auglýsing -
Alls hafa ellefu látist hér á landi í fjórðu bylgju faraldursins en sá fjórði á þessu ári lést í gær. Greindi Vísir frá andlátinu.
Þá hafa 42 látist af völdum Covid-19 frá upphafi.
Þrjú andlát urðu á stuttum tíma vegna faraldursins. Karlmaður á sjötugsaldri lést þann 4.janúar síðastliðinn og tveir karlmenn á níræðisaldri létust um helgina.
Samkvæmt tölum gærdagsins lágu 37 á Landspítala með staðfest smit. Sjö voru á gjörgæslu og þar af sex í öndunarvél. Fréttin verður uppfærð þegar nýjar tölur liggja fyrir í dag.