Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra sækist eftir því að leiða lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir kosningarnar í maí. Hann snýr aftur í pólitíkina en Guðmundur Árni var áður í bæjarstjórnmálum Hafnarfjarðar í 12 ár, þar af 7 ár sem bæjarstjóri.
Guðmundur Árni greindi frá framboði í færslu á Facebook síðu sinni í gærkvöldi. Hann segir í færslunni að margir jafnaðarmenn í Hafnarfirði hafi lýst yfir stuðningi við að hann byði sig fram til forystu í bænum. Samfylkingin hefur verið í minnihluta í Hafnarfirði síðustu átta ár.
Fyrir utan bæjarpólitíkina var Guðmundur Árni varaþingmaður Alþýðuflokksins frá árinu 1991 til 1993 og þingmaður fyrir Alþýðuflokkinn og Samfylkinguna frá 1993 til 2003.
„Það er mikilvægt að allir Hafnfirðingar geti verið stoltir af bænum sínum. Það kallar á ný viðbrögð, opið stjórnkerfi og virka aðkoma bæjarbúa að endurbótum,“ segir Guðmundur Árni.