Tíu börn yngri en 16 ára hafa þurft að leggjast inn á Landspítalann vegna Covid-19 hér á landi. Alls hafa 9.300 börn greinst með veiruna og því um 0,1 prósent þeirra sem hafa þurft að leggjast inn. Eins árs gamalt barn liggur nú inni á spítalanum með veiruna skæðu.
Um sextíu börn eru í nánu eftirliti Landspítalans vegna Covid-19. Í sýnatökum síðustu daga hafa börn undir átta ára aldri verið um 500 til 600 talsins og talsmaður heilsugæslunnar segir það vera algjöran hámarksfjöldi sem hægt væri að ráða við á einum degi.
Nú liggja 46 á Landspítalanum með kórónuveiruna og gera spálíkön ráð fyrir að þeim muni fjölga í 70 á seinni hluta janúar. Þrír hafa látist á spítalanum á síðustu fimm dögum og alls hafa fjórir farið á árinu. Á gjörgæslu hafa tvö börn þurft að leggjast.
Hlutfall þeirra sem þurfa að leggast inn á spítala vegna alvarlegra veikinda er um 0,5 prósent af öllum greindum smitum. Hlutfallið er heldur lægra þegar um er að ræða Ómíkron eða 0,2-0,3 prósent.