Fimmtudagur 21. nóvember, 2024
-9 C
Reykjavik

Margrét Friðriksdóttir öskureið út í Stöð 2: „Reyndu að láta mig líta illa út“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Baráttukonan og ritstýran Margrét Friðriksdóttir er æf út í Stöð 2 og fullyrðir hún að fjölmiðillinn hafi viljandi tekið viðtal við hana úr samhengi, allt til þess að láta hana líta illa út í augum þjóðarinnar. Margrét ætlar að hætta í viðskiptum við fyrirtækið vegna þess sem hún kallar óheiðarlega fréttamennsku.

Margrét greinir frá slitum viðskiptanna í færslu á Facebook. Þar segir hún:

„Var að hætta í viðskiptum við Stöð2 og Sýn þar sem þau tóku viðtal við mig úr samhengi og reyndu að láta mig líta illa út og neita að birta viðtalið í heild sinni svo hið rétta komi fram. Ég tel þetta óheiðarlega fréttamennsku og versla ekki við slíka, er ekki málið að færa sig yfir í símann eða betri hugmyndir?“

Líkt og Mannlíf greindi frá náði Margrét nýlega loksins að smita sjálfa sig af Covid-19 en hún hefur lengi reynt að smitast en illa gengið.

„Covid hefur nú yfirtekið heimilið og ég náði loks að smitast. Þetta tók sinn tíma og var ég eiginlega búin að gefast upp á því að reyna smitast og farin að sætta mig við að ég myndi sennilega ekki ná því. Ég gat varla verið útsettari fyrir veirunni hér á heimilinu með tvo Covid smitaða, en það tókst að lokum,“ sagði Margrét.

„Það var á föstudagskvöldið sem mér fór að líða skringilega, var mjög kalt og fór því í heitt bað en þrátt fyrir það var mér enn kalt og drakk því þrjá bolla af heitu sítrónutei. En allt kom fyrir ekki, ég var að krókna úr kulda. Klæddi mig í hlý föt, því mig grunaði að ég væri komin með veiruna. Þegar ég vaknaði um morguninn fann ég fyrir hálsbólgu og höfuðverk og ákvað því að fara í sýnatöku.“

- Auglýsing -

Margrét fullyrðir að hún geti ekki smitað aðra af Covid-19 því hún sé sjálf ónæm fyrir sjúkdómnum. „Ég er greinilega ein af þeim. Þetta þýðir ef ég get ekki smitast þá get ég heldur ekki smitað útfrá mér,“ segir Margrét.

Í samtali við Mannlíf lýsti Margrét aðferðum sínum við að reyna að smitast af Covid af dætrum sínum. „Merkilegast er að ég er búin að bera reyna smitast en ekkert gengur og eldri stelpan mín smitast ekki heldur, erum allar óbólusettar. Ég er einmitt búin að vera drekka úr glasinu hennar og láta hana anda ofan í mig en ekkert gengur,“ sagði hún.

Margrét hefur skráð sig í alþjóðlega samanburðarrannsókn þar sem reynt verður að finna út hvor hópurinn er betur varður gegn kórónuveirunni, bólusettir eða óbólusettir. Varla þarf að taka það fram að Margrét tilheyrir síðari samanburðarhópnum enda hefur hún lengi talað gegn bólusetningum hér á landi gegn veirunni skæðu.

- Auglýsing -

Til að berjast gegn sóttvarnaraðgerðum og bólusetningunum stofnaði Margrét vefsvæðið frettin.is sem á dögunum hlaut skráningu sem fjölmiðill. Hún tekur nú þátt í þessari alþjóðlegu rannsókn og samkvæmt henni má hún alls ekki láta bólusetja sig gegn Covid-19.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -