Hin glæsilega Nadia Katrín Banine á 55 ára afmæli í dag. Nadia var tíður gestur á skjáum landans á árum áður en stjórnaði þættinum Innlit/útlit ásamt Arnari Gauta Sverrissyni og Þórunni Högnadóttur. Nú starfar Nadia sem fasteignasali.
Nadida var í viðtali fyrir nokkrum árum í Smartlandi Mörtu Maríu þar sem hún meðal annars talaði um heilsuna sem hún hugsar mikið um.
„Ég reyni að sneiða eins mikið og ég get hjá unninni matvöru. Borða ekki mikið af mjólkurvörum en leyfi mér þó góða osta stöku sinnum. Síðan ég komst að því að svín hafa ekkert sogæðakerfi og geta ekki losað sig við óhreinindi úr líkamanum þá borða ég ekki svínakjöt, en það kemur þó fyrir að ég fái mér egg og beikon. Eins og þú sérð þá er gífurlega erfitt að vera alveg heilagur í þessum málum. Ég held að það sé mikilvægast að vera meðvitaður um mataræði og hollustu, en leyfa sér þó stöku sinnum og njóta þess í botn sem manni þykir gott,“ sagði Nadia.
Mannlíf óskar Nadiu til hamingju með afmælið!