Vítalía Lazareva, konan sem skók samfélagið með uppljóstrunum um áreiti viðskiptaforkólfa og frægs sjónvarpsmanns, er í nærmynd í helgarblaði Mannlífs. Þar er einnig yfirlýsing sem baráttuhópurinn Öfgar sendi Mannlífi til stuðnings Vítalíu.
„Það krefst mikils styrks til að kona, svona ung, fari gegn mönnum með sterka stöðu í samfélaginu. Ekki eru völdin bara þeirra heldur ná þau einnig til annarra valdamikilla einstaklinga í samfélaginu.
Vítalía var fullkomlega vanmetin, rödd hennar og styrkur var vanmetinn af þeim öllum.“
Yfirlýsingu Öfga má í heild sinni finna í helgarblaði Mannlífs, sem og nærmyndina af Vítalíu.