- Auglýsing -
Einn eitt andlátið vegna Covid 19 er staðreynd.
Karlmaður á áttræðisaldri lést á gjörgæslu Landspítalans vegna Covid-19 í gær.
Alls hafa því 45 látist vegna veirunnar á Íslandi.
Sagt er frá andlátinu á vef Landspítalans og þar kemur einnig fram að 37 sé nú á Landspítala með Covid 19, þar af eru þrír á gjörgæslu, allir í öndunarvél.
Kemur einnig fram að meðalaldur innlagðra er 63 ár.
Covid 19 sýktir starfsmenn spítalans eru nú 213, og í eftirliti gögnudeildar Covid voru í gær 9.336, þar af 3.366 börn.