Barnabarn Grace Kelly, Charlotte Casiraghi(35), stal sviðsljósinu á Chanel sýningunni á tískuvikunni í París.
Charlotte kom ríðandi á hesti inn tískupallinn og var hún stórglæsileg í svörtum tweed jakka með kristalshnöppum. Við jakkan klæddist hún svörtum leggings og reiðhjálmi.
Viðstaddir hafa sagt sýninguna ógleymanlega og Charlotte sögð hafa líkst móður sinni, Caroline prinsessu af Hannover og ömmu sinni, Grace Kelly mikið.
Charlotte er vel þekkt innan tískuheimsins og hefur hún setið fyrir í tímaritum og auglýsingum fyrir mörg af þekktustu tískumerkjum heims. Auk þess hefur hún leikstýrt kvikmyndum, og starfað sem blaðamaður í fjölda tímarita í gegnum árin.