Geggjaðar Avókadó-franskar sem geta staðið einir og sér með góðri sósu en eru líka frábærar sem meðlæti með kjöti eða fiski.
Avókadó-franskar
u.þ.b. 16 bitar
2 stór avókadó (lárpera)
½ tsk. laukduft
½ tsk. reykt paprika
svartur pipar eftir smekk
cayenne-pipar á hnífsoddi
2 msk. kókosmjöl
200 g brauðraspur
1 egg
ólífuolía
Hitið ofninn í 220°C. Skerið avókadóin í tvennt, takið steininn úr og skerið í báta. Blandið kryddi, kókosmjöli og brauðraspi saman í skál. Þeytið eggið létt í annarri skál. Veltið bitunum upp úr egginu og síðan brauðraspsblöndunni. Raðið á bökunarpappír og bakið í 10-15 mín. eða þar til bitarnir eru orðnir fallega brúnir. Berið fram með chipotle-sósunni.
Chipotle-sósa
1 dl majónes
1 dl sýrður rjómi
2 tsk. chipotle-mauk, (fæst í litlum glerkrukkum)
safi úr hálfri límónu
Blandið öllu vel saman. Gott er að láta sósuna standa aðeins áður en hún er borin fram.
Mynd / Heiðdís Guðbjörg
Stílisti / Hanna Ingibjörg