Margir hafa lýst yfir stuðningi við Siggu Dögg, kynfræðing, eftir komu hennar í Kastljós í gær en hún hefur verið umdeild í samfélaginu upp á síðkastið og sögð „kenna börnum í skólum kyrkingar.“
Kynjafræðikennararnir Hanna Björg Vilhjálmsdóttir og María Hjálmtýsdóttir dæmdu þá ákvörðun skóla að fá aðkeyptan kynfræðing og áhrifavald sem kenni meðal annars „lífshættulegt kyrkingarkynlíf.“
Sigga Dögg svaraði þessu á Twitter síðu sinni:
„Elska þegar fólk talar um mig án þess að nefna mig á nafn og tala um mig og mín störf án þess að hafa setið hjá mér fræðslu.“
Sigga hefur fengið mikið lof á samfélagsmiðlum fyrir sitt starf:
„Þú varst ofboðslega flott! Ég dáist að þér að ná að taka high ground á móti henni, ekki síst í ljósi þess hvað hún greip oft frammí fyrir þér. Þú og þitt starf eruð ó svo mikilvæg og ég lít framtíðina björtum augum ef ungmenni landsins fá að hlýða á fræðsluna þína!“ segir Hekla á Twitter.
Edda Falak og Erna Kristín eru meðal þeirra sem hafa lýst yfir stuðningi við Siggu Dögg.