Mannlíf gefur tilbaka!
Mannlíf er á mikilli uppleið og hefur vefurinn að undanförnu slegið hvert metið á fætur öðru í lestri. Mannlíf þakkar dyggum lesendum kærlega fyrir.
Við þökkum fyrir með því að gefa út vandað og frítt tímarit fyrir landsmenn.
Í blaðinu að þessu sinni má finna spennandi viðtöl; meðal annars um hjón sem fundu ástina á milli Íslands og Kenía, umfjöllun um íslenska tannlæknastofu í Búdapest sem blaðamaður heimsótti, ógnvekjandi baksýnisspegil, ýmsa pistla og margt fleira skemmtilegt.
Mannlíf er frítt fyrir alla og við hlökkum til áframhaldandi samfylgdar.