Mikill harmleikur átti sér stað í London þegar tilkynnt var um hvarf tveggja ára stúlku þann 29.janúar en aðeins klukkutíma síðar fannst hún látin.
Í frétt Mirror segir að 20 til 30 manns hafi leitað stúlkunnar ásamt lögreglu en að lokum var það lögregluhundur sem fann hana í svartri fötu í garði nálægt húsi hennar. Ekki er vitað hver dánarorsök stúlkunnar eru en eitthvað vatn var í fötunni svo talið er að hún hafi drukknað, ekki verður vitað fyrir fullt hvað gerðist fyrr en krufning fer fram. Ekki er komið í ljós hvort atvikið hafi átt sér stað með saknæmum hætti en málið er flokkað sem óútskýrt eins og er.