Heimsfræga söngkonan og hönnuðurinn Rihanna birti í gær fyrstu óléttumyndina sína á Instagram. Rihanna á von á barni með kærasta sínum, rapparanum A$AP Rocky. Þau voru á dögunum mynduð á götum New York þar sem Rihanna sýndi óléttukúluna í fyrsta sinn.
Á myndinni sem Rihanna birti sjálf á Instagram-reikningi sínum lyftir hún upp íþróttatreyju til þess að sýna kúluna. Myndinni fylgja svo nokkrar myndir frá göngu þeirra Rocky um New York á dögunum. Við myndina skrifar hún „how the gang pulled up to black history month“.
Heimildamaður segir í samtali við People að barneignir hafi aldrei verið eitthvað sem Rihanna hafi verið upptekin af, en hún hafi opnað á möguleikann eftir að hún hóf samband sitt með A$AP Rocky. „Hún gæti ekki verið hamingjusamari og hlakkar mikið til að verða móðir.“
„Hún elskar allar breytingarnar sem eru að verða á líkama hennar á meðgöngunni og hefur alltaf fagnað ófrískum konum á tískupöllum sýninga Fenty,“ segir heimildamaðurinn jafnframt.