Flugvélin sem hefur verið leitað frá því á fimmtudag er nú fundin. Vélin fannst í sunnanverðu Þingvallavatni með fjarstýrðum kafbát frá Teledyne Gavia í Ölfusvatnsvík ,seint í gærkvöldi.
Kom þetta fram í tilkynningu frálandhelgisgæslunni og greindi Vísir frá málinu.
Landhelgisgæslan segir í tilkynningu þakka öllum þeim sem komu að leitinni og unnu óeigingjarnt og fórnfúst starf við erfiðar aðstæður en leitin var mjög umfangsmikil.
Fyrirhugaður er stöðufundur í dag en þar verður farið yfir næstu skref. Flugvélin var að gerðinni Cessna 172N og var flugmaðurinn, Haraldur Diego, eigandi vélarinnar. Haraldur er tæplega fimmtugur og reynslumikill flugmaður. Hann rekur fyrirtækið Volcano Air Iceland og nýtur mikillavinsælda í útsýnisflugi. Haraldur er einnig AOPA, hagsmunafélags flugmanna og flugvélaeiganda á Íslandi og ritstjóri Flugsins.
Í vélinni voru einnig þrír erlendir ferðamenn á þrítugsaldri. Það voru símar farþeganna sem vísuðu á staðinn þar sem harmleikurinn varð.